Algengar spurningar
Starfsfólk Bálstofunnar í Fossvogi tók saman nokkrar af algengustu spurningum sem beint hefur verið til þeirra í gegnum tíðina og svör við þeim:
Fyrir hverja eru bálfarir?
Fyrir öll trúfélög og samfélagshópa sem kjósa bálfarir.
Þarf askan að vera í keri?
Nei aska þarf ekki að fara í ker, koma má með ílát undir öskuna en það þarf að rúma að lámarki 4 lítra
Get ég komið með mitt eigið ílát?
Já en það þarf að rúma að lámarki 4 lítra
Má jarðsetja ker í eldri leiði?
Já hægt er að jarðsetja allt að 10 kerjum í leiði og fleirum með réttu skipulagi í upphafi
Get ég dreift ösku innan garðana?
Nei, aðeins er þar til gerður fóstur dreifingar reitur, en almennur öskudreifingarreitur
Hvar má dreifa ösku?
Á sjó og í óbyggðu landi/ heiðum
Eru til fjölskylduduftreitir?
Ekki eru til sérstakir fjölskyldu grafreitir hvorki fyrir kistur né duft, þó er hægt að taka frá kistuleiði og skipuleggja það í upphafi sem fjölskyldugrafreit. Það er þá að stærðinni 120 x 200 – skilja þarf eftir kennitölu þeirra er áætla að „liggja“ í þeirri gröf
Er hægt að brenna áður er útför fer fram?
Já, það er hægt að brenna áður en útför fer fram og þá er duftinu stillt upp við altari /svið s.s fyrir framan aðastandendur og útför fer þá fram yfir kerinu.
Hvað kostar bálför?
Bálför er þeim að kostnaðarlausu er hafa íslenska kennitölu.
Ef ég dey út á landi og vil brennslu, hvernig ber ég mig að?
Ef óskað er eftir brennslu utan höfuðborgarsvæðisins þurfa aðstandendur að bera kostnað á flutning til RVK. Til þess eru nokkrar leiðir. Senda kistu með flutningarþjónustu, flytja kistu á eigin bíl eða semja við útfaraþjónustu um flutning ….. evt. fl. Leiðir
Gilda sömu stærðar takmarkanir um legsteina og í kistugrafsvæðum?
Nei, stærðir duftreita eru minni eða um 75 x 75 um þá gilda sérstakar stærðartakmarknir sem finna má hér: xxxx
Þarf ég að kaupa kistu þegar brennt er?
Eins og staðan er í dag þá þarf þess. Kistan er í raun eldmaturinn.
Af hverju má ég ekki geyma kerið heima þangað til það verður jarðsett?
Samkvæmt lögum um líkbrennslu kemur fram að geyma þarf ker í bálstofu.
Má ég skipta dufti í fleiri en eitt ker?
Samkvæmt lögum um líkbrennslu er það ekki leyfilegt.