Bálför
Umhverfisvænn kostur
Við líkbrennslu eða bálför er niðurbrot mannslíkamans það sama og þegar jarðað er í kistu. Sömu efnahvörfin eiga sér stað en eðli málsins samkvæmt gerist niðurbrotið miklu hraðar við brennslu. Við bálför er kista hins látna sett inn í heitan líkbrennsluofn sem hitaður og tendrast hún eldi vegna timbursins í kistunni. Að tveim tímum liðnum er kista og líkami hins látna orðin að ösku sem síðan er látin kólna og endingu sett í merkt duftker. Askan sem eftir stendur að aflokinni líkbrennslu er að jafnaði um fjórir lítrar.
Af því leiðir að enginn munur er á útför einstaklings hvort um er að ræða bálför eða jarðarför. Ef þess er óskað er hægt að brenna fyrir útför en gott er að vita að biðtími eftir brennslu er að jafnaði 7-10 dagar.
Aðstandendur ákveða svo hvar og hvenær duftkerið er grafið, sem skal gerast innan þriggja mánaða.
Duftker
Strax að lokinni líkbrennslu á að safna ösku viðkomandi einstaklings í þar til gert duftker sem gert er úr niðurbrjótanlegu efni, s.s. léttbrenndum leir, tré, hertum pappa eða öðru jafngildu efni. Þó má notast við ker úr haldmeira efni sem ekki veldur mengun í jarðvegi.
Ef aska hins látna er ekki jarðsett, strax að lokinni líkbrennslu ber að varðveita duftker í læstum traustum skáp við bálstofuna. Ef senda á öskuna til annarra staða ber forráðamönnum bálstofu að búa um kerið á tilhlýðilegan og öruggan hátt. Í slíkum tilvikum þurfa viðtakendur duftkersins að staðfesta móttöku þess skriflega.
Viðtakendur geta verið aðstandendur, hlutaðeigandi sóknarprestar, starfsmenn útfararþjónustu, kirkjugarðsverðir eða eftir atvikum forráðamenn bálstofu, sem svo skulu sjá um jarðsetningu öskunnar.
Duftker er hægt að kaupa af útfararstofum og víðar. Reglur um duftker er að finna hér að neðan.
Lög og reglur
Lög um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu
1993 nr. 36 4. maí
https://www.althingi.is/lagas/nuna/1993036.html
Reglugerð um kistur, duftker, greftrun og líkbrennslu.
https://www.reglugerd.is/reglugerdir/eftir-raduneytum/dmr/nr/9431
Frá andláti til brennslu
Þegar einstaklingur deyr t.d. á spítala þá lík hans sótt í líkhús spítalans af útfarastofu og flutt í líkhús við Bálstofu í Fossvogi. Þar er líkið lagt í kistu og farið með kistulagningabæn og síðar útför. Útför fyrir bálför er að öllu leiti eins og venjuleg útför nema að kistan er ekki borin til grafar. Eftir útför fer kistan aftur í líkhúsið Fossvogi. Ef ákveðið hefur verið að að brenna skuli viðkomandi, þurfa öll skjöl að liggja fyrir áður en bálför getur farið fram.
Skila þarf dánarvottorði til sýslumanns og vottorð frá lögreglustjóra þarf að liggja fyrir um að engin meinbugir séu á fyrirætlun um bálför. Einnig þarf umsókn um brennslu með undirskrift aðstandanda og undirskrift og stimpil sýslumanns. Þegar allir pappírar hafa skilað sér til Bálstofu fær hinn látni bálfararnúmer og brennsla getur farið fram. Að brennslu lokinn ákveða aðstandendur í samráði við útfararstofu hvenær kerið skal jarðað. Æskilegt er að það sé gert innan árs frá andláti.
Flutningur innanlands
Þegar andlát á sér stað á landsbyggðinni og óskað er eftir bálför þarf að flytja hinn látna eftir útför í líkhúsið í Fossvogi. Útfararstofa sér um flutninginn eða aðstandendur sjálfir, allt eftir vilja hvers og eins. Flutningafyrirtæki taka einnig að sér að flytja kistur á milli landshluta. Ekki þarf að fylla út sérstök skjöl vegna þessa fyrir utan hefðbundna bálfararbeiðni.
Flutningur jarðneskra leifa milli landa
Þegar erlendir ríkisborgarar andast hér á landi er algengast að aðstandendur þeirra óski eftir að viðkomandi sé brenndur á Íslandi og jarðneskar leifar þeirra fluttar til heimalandsins. Í sumum tilvikum eru lík þó flutt milli landa í þar til gerðum líkkistum. Eðli málsins samkvæmt er það hins vegar mun umfangsminni, einfaldari og ódýrari aðgerð að flytja jarðneskar leifar í duftkeri en í líkkistu. Sama á við þegar duftker eru flutt hingað til lands.
Þegar jarðneskar leifar eru fluttar í duftkerjum á milli landa þurfa dánarvottorð og leyfi til brennslu að fylgja. Fyrir sendingu þarf að búa um duftkerfið með eftirfarandi hætti:
- Kerið skal merkt nafni hins látna, fæðingardegi, dánardegi, brennslunúmeri og brennslustað.
- Duftkerinu skal komið fyrir í lokuðum plastumbúðum sem kemur í veg fyrir að aska leki ef duftkerið opnast og tryggi jafnframt að duftkerið sé stöðungt í ytri umbúðum.
- Fylgiskjölum skal komið fyrir í ytri umbúðum þannig að auðvelt sé að nálgast þau við komu á áfangastað.
- Á umbúðir skal vera prentaður límmiði með nafni og heimilisfangi sendanda og móttakanda.
- Öskjuna skal ætíð senda í ábyrgðarpósti.