Bálstofan
Fyrirtækið og þjónustan
Bálstofan í Fossvogi hefur verið rekin frá árinu 1948 en í henni eru tveir rafkyntir líkbrennsluofnar. Það var Bálfararfélag Íslands sem á sínum tíma hafði forgöngu um kaup og uppsetningu búnaðarins en félagið var stofnað 1934 og voru jarðneskar leifar Gunnlaugs Classen formanns félagsins þær fyrstu sem brenndar voru í ofnum Bálstofunnar.
Bálstofan í Fossvogi er rekin af Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæmis,(KGRP) og er þjónustan gjaldfrjáls fólki búsettu á Íslandi. Bálstofan er opin öllum óháð trú eða lífsskoðun.
Starfsfólk
Arnar Þór Gunnarsson
María Benediktsdóttir
Beinn sími í Bálstofu er:
585-2756
Útgefið efni
Skýrsla um mengun frá bálstofu
Mæling á kvikasilfri í jarðvegi
Kirkjugarðar Reykjavíkur – Maí 2012
Smelltu hér til að ná í skýrsluna á PDF sniði
Ný bálstofa á Íslandi
Skýrsla kirkjugarðaráðs um hönnun og kostnað við byggingu og rekstur nýrrar bálstofu á Íslandi unnin í október 2021
Smelltu hér til að skoða skýrsluna – flettisnið.